Reykjavík, 09 október 2008 - Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings Services tilkynnti í gær breytingu á langtíma lánshæfismatseinkunn Glitnis úr BBB í CCC. Vegna þessa lækkaði skammtíma einkunn bankans úr B í D. Stuðnings einkunn (e. support rating) fer úr 4 í 5. Einkunnir fyrir víkjandi lán (e. subordinated debt og hybrid capital instruments) eru færðar úr CCC+ í C annars vegar en staðfestar í C hins vegar. Sjálfstæð einkunn bankans var staðfest sem F. Nánari upplýsingar veitar: Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla, sími 440 4748, GSM 844 4748, netfang: sigrun.hjartardottir@glitnir.is
Fitch breytir einkunn á Glitni
| Source: Glitnir banki hf.