Sala á hlutum í Storebrand Exista hf. hefur í dag selt 39.097.164 hluti í Storebrand ASA, eða samtals 8,69% af heildarhlutafé félagsins, til Gjensidige Forsikring BA. Hlutirnir voru seldir á genginu NOK 20,0 á hlut. Eftir viðskiptin á hvorki Exista né dótturfélög þess hluti í Storebrand. Hluti viðskiptanna, eða 18.209.877 hlutir sem nema 4,05% af heildarhlutafé Storebrand, er háður samþykki fjármálaeftirlitsins í Noregi.