Reykjavík 14. október 2008 - Glitnir Finnlandi, dótturfélag í 100% eigu Glitnis banka hf., hefur verið selt stjórnendum félagsins þar í landi. Þetta er niðurstaða viðræðna sem átt hafa sér stað milli aðila með aðkomu og samþykki finnska fjármálaeftirlitsins. Kaupverðið er trúnaðarmál. Búist er við því að finnska félagið muni í framhaldinu taka aftur upp nafnið FIM en svo hét það fyrir yfirtöku Glitnis á seinasta ári. Nánari upplýsingar veita: Glitnir Ísland Sigrún Hjartardóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 440 4748, farsími 844 4748. Glitnir Finnlandi Johannes Schulman, forstjóri, í síma +358 9 6134 6557, E-mail: johannes.schulman@glitnir.fi
Glitnir selur starfsemi sína í Finnlandi
| Source: Glitnir banki hf.