- Veðlán Seðlabanka Íslands


Líkt og aðrir seðlabankar veitir Seðlabanki Íslands fjármálafyrir­tækjum
reglulega lausafjárfyrirgreiðslu í formi lána gegn veði. Veð sem
fjármálafyrirtæki leggja fram þurfa að uppfylla skilyrði reglna Seðlabankans um
viðskipti við þau. Þær eru áþekkar reglum annarra seðlabanka. Meðal skuldabréfa
sem uppfylla skilyrði reglnanna eru ríkisskuldabréf og bréf fjármálafyrirtækja
sem uppfylla skilgreindar lágmarkskröfur, svo sem um lánshæfi. 

Eins og aðrir seðlabankar leitaðist Seðlabanki Íslands með fyrir­greiðslu sinni
við að auðvelda starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja í þeirri fjármálakreppu
sem riðið hefur yfir heiminn. Seðlabankinn fylgdi í því efni fordæmi annarra
seðlabanka og jók fyrirgreiðslu sína og þar með áhættu. Hann gekk þó ekki jafn
langt og þeir seðlabankar sem lengst gengu. 

Við stofnun nýrra banka um rekstur innlendrar viðskiptabanka­starfsemi eftir að
þrír bankar komust í þrot færðust innlend innlán til þeirra. Þá kom til álita
að skuldir vegna verðbréfa sem veðsett voru Seðlabankanum færðust einnig þangað
til að treysta áframhald innlendrar bankastarfsemi. Við nánari skoðun
Fjármálaeftirlits og forsvarsmanna ríkissjóðs, í samráði við lögfræðilega
ráðgjafa, innlenda sem erlenda, þótti rétt að öll skuldabréf útgefin af gömlu
bönkunum yrðu að svo stöddu þar eftir til þess að tryggja gagnsæi og að
kröfuhöfum yrði ekki mismunað. Á þessi stigi er því ekki endanlega ákveðið hvað
verður um framangreindar kröfur Seðlabankans og þá hvort og hve mikið verðbréf
í eigu Seðlabankans kunna að falla í verði. Líkur eru þó á að Seðlabankinn fari
ekki tjónlaus frá falli viðskiptabankanna þriggja enda hefði það verið nánast
útilokað. Niðurstaða mun liggja fyrir þegar nefnd, sem metur eignir og skuldir
nýju og gömlu bankanna, lýkur störfum. Hún er skipuð erlendum fagaðilum og fær
liðsinni innlendra sérfræðinga. Með þeim hætti er kappkostað að matið verði
hlutlaust og faglega unnið í hvívetna. Mikið er í húfi að endurheimt verði eins
mikið af útistandandi kröfum og kostur er til þess að lágmarka tjón kröfuhafa
bankanna.