Össur hf. birtir afkomu fyrir þriðja ársfjórðung 2008 þriðjudaginn 28. október, fyrir opnun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 28.október á Grand Hótel við Sigtún, Reykjavík og hefst kl. 12.00. Þar mun Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku. Sýnt verður beint frá fundinum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Eftirfarandi eru innhringinúmer fyrir fundinn: Ísland: 800 8660 Evrópa: +44 (0)20 3043 2436 Bandaríkin: +1 866 458 40 87 Kynningarefni verður aðgengilegt á heimasíðu Össurar: www.ossur.com Fréttavef Kauphallarinnar Nasdaq OMX: www.omxnordicexchange.com/newsandstatistics/companynotices og á www.huginonline.com