• Velta 219,4 ma.kr. (1,2 ma.punda) á fyrstu níu mánuðum ársins, 10% aukning, og 73,7 ma.kr. (402,8 m.punda) á þriðja ársfjórðungi, 7% aukning • EBITDA 16,1 ma.kr. (87,9 m.punda) á fyrstu níu mánuðum ársins, 24% lækkun, og 5,4 ma.kr. (29,4 m.punda) á þriðja ársfjórðungi, 26% lækkun, að meðtöldum kostnaði við endurskipulagningu að upphæð 0,9 mö.kr. (4,8 m.punda) á fyrstu níu mánuðum ársins, þar af 311 m.kr. (1,7 m.punda) á þriðja ársfjórðungi • EBITDA hlutfall 7,3% fyrstu níu mánuði ársins og 7,3% á þriðja ársfjórðungi (EBITDA hlutfall að undanskildum kostnaði við endurskipulagningu 7,7% fyrstu níu mánuði ársins og 7,7% á þriðja ársfjórðungi) • Rekstrarhagnaður (EBIT) 10,0 ma.kr. (54,7 m. punda) fyrstu níu mánuði ársins, 37% lækkun, og 3,3 ma.kr. (18,2 m. punda) á þriðja ársfjórðungi, 39% lækkun • Handbært fé frá rekstri 8,1 ma.kr. (44,3 m. punda) fyrstu níu mánuði ársins, 46% lækkun, og 5,3 ma.kr. (28,8 m. punda) á ársfjórðungnum, 41% aukning • Hagnaður hluthafa, án áhrifa taps af öðrum fjármálagerningum, nam 1,1 ma.kr. (5,8 m.punda) á fyrstu níu mánuðum ársins • Arðsemi eigin fjár án áhrifa taps af öðrum fjármálagerningum 3,3% á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 19,2% á sama tímabili 2007 • Hagnaður á hlut 0,3 pens á fyrstu níu mánuðum ársins, án áhrifa taps af öðrum fjármálagerningum, samanborið við 1,7 pens á fyrstu mánuðum ársins 2007 • Tap af skiptasamningi vegna 10,9% hlutar í Greencore Group PLC 10,7 ma.kr. (58,5 m.punda) á fyrstu níu mánuðum ársins, þar af 2,2 ma.kr. (12,3 m. punda) á þriðja ársfjórðungi • Í október var tilkynnt um lokun skiptasamnings (e. Contract for Difference) félagsins um 10,9% hlut í Greencore Group, þar sem fjármögnun samningsins var dregin til baka • Frekari hagræðingar að vænta í framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum á fjórða ársfjórðungi og í október Ágúst Guðmundsson, forstjóri: „Bakkavör Group hefur orðið ágengt í mjög krefjandi rekstrarumhverfi en helstu áherslur okkar eru að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni, ná fram meiri hagkvæmni í rekstri, auka markaðshlutdeild og sjóðstreymi félagsins enn frekar. Við gerum ráð fyrir því að þessi vinna skili aukinni afkomu á árinu 2009. Eins og gert var ráð fyrir hafði kostnaður vegna hagræðingaraðgerða sem ráðist var í á árinu 2007, verðhækkanir á hráefni og aukinn orkukostnaður neikvæð áhrif á afkomu félagsins á tímabilinu. Ennfremur höfðu minni væntingar neytenda og óhagstætt veðurfar í Bretlandi yfir sumarmánuðina áhrif á sölu félagsins á þriðja ársfjórðungi. Félagið náði engu að síður að auka markaðshlutdeild sína í tilbúnum réttum og öðrum lykilvöruflokkum í lok fjórðungsins sem gert er ráð fyrir að skili auknum tekjum á fjórða ársfjórðungi. Í byrjun október greindum við frá því að Bakkavör Group hefði lokað skiptasamningi vegna 10,9% hlutar í Greencore Group. Vegna umróts og mikilla sveiflna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum var fjármögnun vegna skiptasamningsins dregin til baka, sem gerði það að verkum að við þurftum að loka samningnum. Fjármögnun skiptasamningsins var hins vegar ekki á nokkurn hátt tengd fjárhagsstöðu félagsins. Við gerum ráð fyrir að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi það sem eftir lifir árs og fram á það næsta. Áherslur okkar í rekstri verða áfram þær sömu en við sjáum fram á að aðgerðirnar komi til með að skila félaginu ávinningi á næsta ári. Við höfum fulla trú á markaðnum með fersk tilbúin matvæli og leggjum áherslu á að styrkja stöðu okkar á þeim markaði. Félagið þjónar stórum og breiðum hópi viðskiptavina og er vel í stakk búið til að mæta breyttum neysluvenjum og markaðsaðstæðum hverju sinni.“
Afkoma Bakkavör Group á fyrstu níu mánuðum ársins 2008: EBITDA 16,1 milljarður króna á fyrstu níu mánuðum ársins
| Source: Bakkavör Group hf.