Meðfylgjandi eru samþykktir Exista með breytingum sem samþykktar voru á hluthafafundi félagsins 30. október 2008. Vakin er athygli á því að í samþykktum sem fylgdu tilkynningu um niðurstöður hluthafafundar var rangt farið með hlutafé félagsins í 1. málsgrein, 4. greinar samþykktanna. Rétt er að hlutafé félagsins er 14.174.767.632 krónur að nafnverði eins og fram kemur í áður birtum samþykktum frá 30. maí 2008.