Helstu atriði • Nettósala nam 125,2 milljónum evra sem er 2,5% samdráttur miðað við sama tíma í fyrra en salan á samanburðargrundvelli (pro forma basis) jókst um 1,7% • EBITDA nam 6,4 milljónum evra sem er 11% samdráttur miðað við síðasta ár en 12,5% aukning á samanburðargrundvelli þegar miðað er við stöðugt gengi og án tilfallandi kostnaðar • Hátt hráefnisverð, óhagstæðar gengishreyfingar og kostnaður vegna áætlana sem hætt var við hafði áhrif á afkomu ársfjórðungsins • Fyrirhuguð fyrirtækjakaup eru í biðstöðu vegna erfiðs viðskiptaumhverfis og mikils óróa á fjármálamörkuðum Xavier Govare forstjóri: „Efnahagsumhverfið versnaði til muna á 1. ársfjórðungi fjárhagsársins og var mjög erfitt. Þrátt fyrir erfiðleika vegna minnkandi eftirspurnar neytenda og breyttrar kauphegðunar erum við ánægð með góðan undirliggjandi rekstur þar sem nettósala var stöðug á samanburðargrundvelli( on a constant currency basis and excluding exceptional costs). Þótt erfitt efnahagsumhverfi hafi haft áhrif á afkomu ársfjórðungsins höfum unnið að því að bæta rekstur samstæðunnar og munum halda því áfram með fulltingi öflugs stjórnendateymis og öguðu verklagi. Almennt séð höfðu fimm meginþættir áhrif á starfsemi félagsins á ársfjórðungnum. Í fyrsta lagi voru markaðsaðstæður erfiðar en verð á hrávörum eins og hveiti, korni, soja, laxi og orkugjöfum var hærra en á sama tíma í fyrra. Í öðru lagi hafa neytendur fundið fyrir verðhækkunum og skýr merki eru um að þeir sækist í auknum mæli eftir ódýrari vörum eins og þeim sem seldar eru undir vörumerkjum stórmarkaða. Hafa vinsældir afsláttarverslana ýtt undir þessa þróun. Í þriðja lagi höfðu óhagstæð veðurskilyrði neikvæð áhrif á sölu grilllínu okkar í rækju og andakjöti auk þess sem sala smurvara og ídýfa minnkaði. Í fjórða lagi hafði veikt gengi sterlingspunds gagnvart evru neikvæð áhrif á reiknaða afkomu starfseminnar í Bretlandi en reksturinn þar gekk vel á ársfjórðungnum. Í fimmta lagi varð sterkari staða Bandaríkjadollars til þess að innkaupsverð á rækju hækkaði umtalsvert. Áætlanir okkar snerust um að stýra starfseminni í gegnum þessa erfiðleikatíma með öflugu aðhaldi í kostnaði og útgjöldum. Við erum með traustan og fjölbreyttan rekstur og góða samkeppnisstöðu á mörkuðum sem byggist á aukinni skilvirkni og áframhaldandi áherslu á gæði, vöruþróun, verðmæti og framkvæmd áætlana. Þá höfum við átt samstarf við viðskiptavini okkar um að tryggja nauðsynlegar verðhækkanir í þeirri viðleitni að viðhalda framlegð. Við erum sem fyrr leiðandi í framleiðslu og sölu hágæðamatvöru á völdum markaðssviðum og höfðum til neytenda sem leita eftir miklum gæðum, meiri þægindum og vilja gera vel við sig í mat. Til lengri tíma eygjum við tækifæri til að stækka þennan markað og hlutdeild okkar í honum en til skamms tíma er takmarkið að verða fyrir minni áföllum en aðrir þegar við vinnum okkur út úr efnahagskreppunni. Í heildina reiknum við með að salan verði áfram sveiflukennd og að fjármálakreppan og áhrif hennar á efnahagslífið minnki væntingar neytenda og eftirspurn. Þess vegna erum við varfærin þegar kemur að framtíðarhorfum. Á hitt er að líta að við höfum lagt grunninn að öflugum og fjölbreyttum rekstri sem gerir okkur vel í stakk búin til að mæta erfiðu viðskiptaumhverfi. Við einbeitum okkur nú að mikilvægasta ársfjórðungnum í rekstri félagsins og jólamánuðinum. Miklar væntingar um afkomuna á yfirstandandi ársfjórðungi eru óneitanlega litaðar áhyggjum sem má rekja til afleitra markaðsaðstæðna í október, þegar fjármálakreppan þróaðist til hins verra og fór að hafa veruleg áhrif á efnahagslífið í Evrópu, væntingar neytenda og eftirspurn. Enginn veit í raun hve lengi þetta ástand mun vara. Við getum hins vegar yljað okkur við þá staðreynd að margir neytendur munu forgangsraða útjgöldum sínum upp á nýtt, fresta dýrum orlofsferðum og heimsóknum á veitingastaði og velja þess í stað að gera vel við sig heima yfir hátíðarnar. Staðsetning okkar á markaðnum og eðli framleiðsluvaranna ætti að vera okkur í hag í þessu tilliti. Þá mun það koma okkur til góða að við erum með öflugar áætlanir um kynningar fram til jóla og fjöldi nýrra vara mun koma á markað.”