Jón Hallur Pétursson framkvæmdastjóri SPRON verðbréfa hefur ákveðið að láta af störfum hjá SPRON frá 1. desember næstkomandi. Björg Kristinsdóttir mun taka við starfi hans sem framkvæmdastjóri SPRON verðbréfa. Björg hefur starfað sem forstöðumaður eignastýringar hjá SPRON verðbréfum frá 2004. Áður starfaði hún í fjármáladeild Coca Cola í Póllandi, Anvanse Forvaltning í Osló og þar áður starfaði Björg í 9 ár hjá Kaupþingi. Björg útskrifaðist með MSc. frá Norwegian School of Management árið 1997. Frekari upplýsingar veitir Jóna Ann Pétursdóttir forstöðumaður almannatengsla í síma 550 1771.