18. desember Markmið samnings við Íbúðalánasjóð er að treysta verðmyndun á íbúðabréfum og stuðla að auknum seljanleika þeirra á eftirmarkaði. Í samningnum felst að Straumur er skuldbundinn til að leggja fram tilboð að lágmarki 300 milljónir króna að nafnverði í hverju útboði Íbúðalánasjóðs. Á eftirmarkaði (OMX Nordic Exchange á Íslandi) er Straumur skuldbundinn til að leggja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 milljónir króna að nafnverði og endurnýja þau innan 10 mínútna frá því þeim hefur verið tekið. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er eftirfarandi eftir flokkum íbúðabréfa: HFF 14 : 0,50% HFF 24 : 0,75% HFF 34 : 0,85% HFF 44 : 0,95% Ef Straumur hefur átt viðskipti á einum degi fyrir 300 milljónir króna að nafnverði er Straumi heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Markmið samnings við Seðlabanka Íslands er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á markaði með ríkisverðbréf. Í samningnum felst að Straumur er skuldbundinn að leggja fram tilboð að lágmarki 100 milljónir króna að nafnverði í hverju útboði með ríkisverðbréf. Á eftirmarkaði (OMX Nordic Exchange á Íslandi) er Straumur skuldbundinn að leggja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 milljónir króna að nafnverði og endurnýja þau innan 10 mínútna frá því þeim hefur verið tekið. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er eftirfarandi eftir flokkum ríkisverðbréfa: Líftími 3 - 6 mánuðir : 0,10% Líftími 6 - 12 mánuðir : 0,15% Líftími 1 - 2 ár : 0,20% Líftími 2 - 4 ár : 0,30% Líftími 4 - 6 ár : 0,40% Líftími 6 - 9 ár : 0,70% Líftími 9 ár eða lengri : 0,90% Þegar líftími er þrír mánuðir eða skemmri er Straumi aðeins skylt að leggja fram kauptilboð. Ef Straumur hefur átt viðskipti á einum degi fyrir 300 milljónir króna að nafnverði er Straumi heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Nánari upplýsingar veitir; Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta-og Markaðssviðs. Sími: +354 858 6707 georg@straumur.com
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur gert viðskiptavakasamninga við Íbúðalánasjóð og Seðlabanka Íslands, fyrir hönd ríkissjóðs.
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.