Þann 29. janúar eftir lokun markaða mun Hf. Eimskipafélag Íslands birta uppgjör ársins 2008 sem lauk þann 31. október 2008. Athugið að þetta er breyting á áður auglýstum birtingartíma. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn, 30. janúar í húsakynnum Eimskips, Sundakletti Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega klukkan 08:30 og boðið verður upp á morgunverð. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips og Hilmar P. Valgarðsson fjármálastjóri Eimskips kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu félagsins, eimskip.is.