Helstu atriði: • Sala nam 249,3 milljónum evra og dróst saman um 3,4% á fjórðungnum sem lauk um áramótin • Á samanburðargrundvelli (proforma) var samdráttur í sölu 1,9%. Sala á laxi og öðrum fiski dróst saman um 0,2%, sala á foie gras og andaafurðum dróst saman um 3,2%, sala á blini og smurréttum dróst saman um 4,7% og sala á rækjum og skelfiski dróst saman um 3% • Sala á reyktum laxi undir vörumerkjum fyrirtækisins var svipuð og í fyrra sem var metár • Sala á foie gras undir vörumerki Labeyrie dróst lítillega saman frá fyrra ári eða um 2,7% • Verð var hækkað á þeim matvælum sem seld eru undir vörumerkjum fyrirtækisins og einnig á öllum tegundum af rækjum til að mæta hækkun á hráefnisverði • Sala á ferskum laxi hélt áfram að vaxa í Bretlandi og jókst um fjórðung frá því í fyrra. • Veikara sterlingspund lækkar tekjur frá Bretlandi á fjórðungnum um 8,1 milljónir evra • Áfram er búist við erfiðu efnahagsumhverfi Xavier Govare, forstjóri Alfesca: "Eins og búist var við hafði samdráttur í efnahagslífinu þau áhrif að neysla dróst saman og afleiðingarnar má sjá í sölutölum Alfesca á öðrum ársfjórðungi sem eru 3,4% lægri en á sama tíma í fyrra. En ef litið er framhjá áhrifum veikingar breska pundsins og annarra óreglulegra liða hefur salan dregist saman um 1,9% á samanburðargrundvelli. Þessi niðurstaða kemur í kjölfar dræmrar sölu í október og nóvember. Salan fyrir jólin í desember var hins vegar góð sem bendir til þess að neytendur hafi haldið í við sig þar til dró að hátíðunum. Við eigum von á að erfiðleikar í efnahagslífinu haldi áfram og hafi því einnig áhrif á rekstrarniðurstöður þriðja og fjórða ársfjórðungs."