Viðræður um sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON hafa staðið yfir frá því í byrjun desember og hafa samningsaðilar kannað hvort grundvöllur er fyrir sameiningu sparisjóðanna. Viðræðurnar hafa gengið vel og er nú beðið þess að sparisjóðirnir ljúki ársuppgjörum sínum svo halda megi þeim áfram. Þær tímaáætlanir sem gerðar voru í upphafi viðræðnanna munu ekki nást m.a. vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi en gert var ráð fyrir að niðurstöður þeirra lægju fyrir á fyrstu vikum þessa árs. Engar nýjar tímasetningar liggja fyrir um framhaldið, en stefnt er að því niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er. Nánari upplýsingar veita: Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, í síma 421 6605 Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs, í síma 575 4000 Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, í síma 550 1213