Sparisjóðurinn í Keflavík og Íbúðalánasjóður hafa að undanförnu átt viðræður um sölu íbúðalána Sparisjóðsins, að verðmæti um 9,7 milljarðar, til Íbúðalánasjóðs. Þær viðræðum eru nú á lokastigi. Þann 30. júní 2008 námu heildarútlán Sparisjóðsins í Keflavík 72 milljörðum króna. Lánin verða seld á bókfærðu verði og fær Sparisjóðurinn í Keflavík greitt 80% af andvirði lánanna strax en 20% greiðast síðar. Sala íbúðalánanna hefur engin áhrif á eiginfjárstöðu Sparisjóðsins í Keflavík en styrkir aftur á móti lausafjárstöðu Sparisjóðsins. Frekari upplýsingar veitir Þröstur Leósson forstöðumaður Fjármálasviðs Sparisjóðsins í Keflavík í síma 421 6600
- Viðræður um sölu hluta íbúðalána Sparisjóðsins í Keflavík til Íbúðalánasjóðs
| Source: Sparisjóðurinn í Keflavík