Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Atorku Group hf. með viðskiptabönkum félagsins, hefur Atorka Group hf. samið við alla eigendur skuldabréfa í eftirtöldum flokkum um kyrrstöðu til 20. mars 2009. Þeir flokkar sem um ræðir eru: ATORKA 07 2, útgefinn að verðmæti 3,5 milljarða ISK og ATORKA 06 1, vegna vaxtagjalddaga, útgefinn að verðmæti 2 milljarða ISK. Í samningnum felst að komið er á fót nefnd sem í eiga sæti fulltrúar eigenda skuldabréfa í flokkunum. Sú nefnd vinnur að tillögum um samninga sem tryggja eiga hag eigenda skuldabréfa í flokknum. Þegar niðurstaða hefur verið fengin mun verða tilkynnt um hana. Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 540-6200
Atorka Group hf. semur við skuldabréfaeigendur vegna skuldabréfa með auðkennið ATORKA 07 2 og ATORKA 06 1
| Source: Atorka Group hf.