16. febrúar 2008 Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur" / "bankinn") hefur veitt stjórnendum og starfsmönnum samstæðunnar kauprétti að hlutabréfum í Straumi að nafnverði 650.000.000. Þar af var aðilum í framkvæmdastjórn Straums veittur kaupréttur að hlutum að nafnvirði samtals 296.000.000. Um markmið með kaupréttarkerfi bankans vísast til Starfskjarastefnu Straums sem samþykkt var á aðalfundi bankans 15. apríl 2008. Tilhögun kaupréttanna er með eftirfarandi hætti: Viðmiðunargengi: Viðmiðunargengi kauprétta er ISK 1,67. Viðmiðunargengið er meðalgengi síðustu tuttugu viðskiptadaga fyrir útgáfudag. Útgáfudagur: 16.02.2009 Réttindaávinnsla: Handhafar kauprétta ávinna sér réttindi Í þremur jöfnum áföngum (1/3), þ.e. eftir fyrsta, annað og þriðja ár frá útgáfudegi og er kaupréttur í gildi fram að lokum fimmta árs. Gildistími: Gildistími kauprétta er fimm ár. Kaupréttur fellur niður við starfslok. Nýting: Áunninn kauprétt má nýta hvenær sem er á gildistímanum í samræmi við áunnin réttindi, nema lög og reglur kveði á um tímabundin takmörk við viðskiptum. Tilkynning þessi er send út á grundvelli reglu 2.16 í Reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga, útgefnum af Nasdaq OMX Iceland ehf. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs Sími: 585 6707 Netfang: georg@straumur.com
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. veitir kauprétti
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.