Ársuppgjör fyrir árið 2008 Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almenningsheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær Rekstur og afkoma Leigutekjur Félagsbústaða h.f. á árinu 2008 námu 1.962 millj.kr., sem er 14% aukning tekna frá árinu á undan. Hækkunin skýrist annars vegar af hækkun leigu samkvæmt neysluverðsvísitölu og hins vegar af fjölgun íbúða í útleigu á árinu. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnskostnað og matsbreytingu fjárfestingaeigna nam 824 millj.kr. en var 764 millj.kr árið á undan. Tap á rekstri félagsins á árinu 2008 nam hins vegar 3.688 millj.kr. miðað við 2.261 millj.kr. hagnað árið á undan. Afkomusveifla milli ára skýrist annars vegar af verðlagshækkun langtímalána og lækkunar á mati fjárfestingaeigna milli ára. Efnahagur Fjárfestingaeignir Félagsbústaða hf. eru færðar á gangverði samkvæmt fasteignamati í lok árs og nam bókfært verð þeirra 33.249 millj.kr. í árslok 2008. Eigið fé félagsins nam 10.661 millj.kr. í árslok og lækkaði um 3.642 millj. kr. frá árinu á undan. Eiginfjárhlutfall var 32% en var 45% í árlok 2007. Reksturinn skilaði 188 millj.kr. veltufé á árinu 2008 og handbæru fé frá rekstri 279 millj.kr. Kaup og sala íbúða Á árinu 2008 voru keyptar 83 íbúðir víðsvegar um borgina og seldar 3. Félagsbústaðir áttu 2143 íbúðir í árlok 2008 þar af 1845 leiguíbúðir og 298 þjónustuíbúðir fyrir aldraða ásamt tilheyrandi þjónusturýmum. Íbúðaeign félagsins í árslok 2008 var um 18 íbúðir á hverja 1000 íbúa í Reykjavík sem er svipaður fjöldi og árið á undan. Horfur Miklar breytingar eru að eiga sér stað á almennum leigumarkaði íbúðarhúsnæðis í borginni sem m.a lýsir sér í auknu framboði samfara lækkun leiguverðs. Ennþá hefur aukið framboð húsnæðis á almennum leigumarkaði ekki dregið úr eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði en þegar líður fram á árið 2009 er viðbúið að þeir leigjendur Félagsbústaða og umsækjendur á biðlista sem standa betur fjárhags- og félagslega leiti á almennan leigumarkað eftir húsnæði sem betur hentar vegna staðsetningar í borginni. Til lengri tíma gæti hér verið tækifæri til þess að skapa aðstæður fyrir almennan leigumarkað á höfuðborgarsvæðinu og um leið svigrúm fyrir félagsleg leigufyrirtæki til þess að sinna betur þeim sem minna mega sín. Eiginfjárstaða Félagsbústaða er sterk þrátt fyrir um 25% raunverðslækkun húsnæðis á árinu 2008 og vel í stakk búin til þess að mæta frekari verðlækkun á húsnæðismarkaði á árinu 2009.