Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur 2008 var í dag, 27. febrúar 2009,
samþykktur og áritaður af stjórn fyrirtækisins.
Rekstrarafkoma Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og
afskriftir, EBITDA, árið 2008 var jákvæð um 11,7 milljarða króna og
batnaði um 17,5% frá árinu 2007. Afkoma fyrirtækisins fyrir
fjármagnsliði, skatta og afskriftir er sú besta í tíu ára sögu þess,
hvort sem miðað er við fjárhæð eða hlutfall af veltu. Það ræðst
alfarið af auknum tekjum af raforkusölu til stórnotenda í erlendri
mynt.
Reiknað gengistap, vegna veikingar íslensku krónunnar, nemur 88,1
milljarði króna og hefur afgerandi áhrif á afkomu og eigið fé
fyrirtækisins. Frá síðustu áramótum hefur gengi krónunnar styrkst og
nemur gengishagnaður Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 26,4 milljörðum
króna.
Afkoma Orkuveitu Reykjavíkur var neikvæð um 73,0 milljarða króna á
árinu 2008 og eiginfjárhlutfall um áramót 18,6%. Frá áramótum hefur
það hækkað umtalsvert í samræmi við styrkingu íslensku krónunnar um
13,5% frá 1. janúar 2009 til 26. febrúar 2009.
Lausafjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur er sterk. Vaxandi tekjur
fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir
greiðslum vegna erlendrar lántöku þrátt fyrir gengissveiflur.
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla.
Helstu niðurstöður ársins 2008
Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 73.037 milljóna króna halla á
árinu 2008 samanborið við 6.516 milljóna króna hagnað 2007.
Rekstrartekjur ársins námu 24.168 milljónum króna en voru 21.364
milljónir króna árið áður.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir,
EBITDA, var 11.652 milljónir króna samanborið við 9.914 milljónir
króna árið áður.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 92.523 milljónir króna á árinu, en
voru jákvæðir um 4.055 milljónir króna árið 2007.
Heildareignir þann 31. desember 2008 voru 259.373 milljónir króna en
voru 191.491 milljón króna í árslok 2007.
Eigið fé þann 31. desember 2008 var 48.359 milljónir króna en var
88.988 milljónir króna í árslok árið 2007.
Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. desember 2008 voru 211.015
milljónir króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007.
Eiginfjárhlutfall var 18,6% þann 31. desember 2008 en var 46,5% í
árslok 2007.
Horfur
Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur
Orkuveitu Reykjavíkur traustur og lausafjárstaða sterk. Áfram er
unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2009 og er áformað að
taka síðasta áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun á fyrsta
ársfjórðungi 2011. Uppbygging annarra virkjana mun taka mið af
aðgengi fyrirtækisins að lánsfé til fjárfestinga, þeim lánskjörum sem
í boði verða og eftirspurn á markaði.
Helstu áhrifaþættir á afkomu Orkuveitu Reykjavíkur eru gengi íslensku
krónunnar, fjármagnskostnaður í erlendum myntum, innlend verðbólga og
álverð á alþjóðamarkaði. Alþjóðlegir vextir hafa þegar lækkað og
hagspár gefa til kynna að aðrir þættir þróist til hagstæðari vegar
fyrir rekstur og efnahag fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, í síma 516-6000.
Orkuveita Reykjavíkur - ársreikningur 2008
Allar tölur eru í milljónum kr.
2008 2007
Rekstrarreikningur 1.1-31.12 1.1-31.12
Rekstrartekjur 24.168 21.364
Rekstrargjöld (12.517) (11.449)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA) 11.652 9.914
Afskriftir (6.953) (5.538)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (92.523) 4.055
Áhrif hlutdeildarfélaga (276) (121)
(Tap) hagnaður fyrir skatta (88.101) 8.310
Tekjuskattur 15.064 (1.794)
(Tap) hagnaður ársins (73.037) 6.516
Skipting (taps) hagnaðar
Eigendur móðurfyrirtækisins (72.960) 6.509
Hlutdeild minnihluta (77) 7
(Tap) hagnaður ársins (73.037) 6.516
Handbært fé frá rekstri 7.699 7.425
Efnahagsreikningur 31.12.2008 31.12.2007
Fastafjármunir 252.618 182.284
Veltufjármunir 6.755 9.207
Eignir 259.373 191.491
Eigið fé 48.359 88.988
Langtímaskuldir og skuldbindingar 196.589 93.205
Skammtímaskuldir 14.425 9.298
Eigið fé og skuldir 259.373 191.491
Kennitölur
Veltufjárhlutfall 0,47 0,99
Eiginfjárhlutfall 18,6% 46,5%