Containerships í Finnlandi sem að hluta til er í eigu Eimskip hefur yfirtekið rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í Miðjarðarhafinu. Yfirtakan hefur ekki nein bein fjárhagsleg áhrif á móðurfélag Eimskip en vegna eignarhalds á Containerships er rekstur þess félags að fullu aðskilinn frá rekstri Eimskip.