16 mars 2009 Eigendur Wood & Company Financial Services (Wood) hafa nýtt sér forkaupsrétt sinn á hlutum í Wood og keypt 50% hlut Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur) í félaginu. Frá og með deginum í dag hafa eigendurnir því tekið yfir alla stjórn á Wood. Umsamið kaupverð er 10 milljónir evra, en auk þessa greiða kaupendur 30% af hagnaði Wood næstu tvö ár, en þó ekki hærri upphæð en sem nemur 5 milljónum evra. Samtímis falla eigendur Wood frá sölurétti á hlutum í Wood til Straums, er losar Straum undan mögulegri skuldbindingu að verðmæti 50 milljón evra. Nánari upplýsingar: Straumur-Burðarás fjárfestingabanki S: +354 585 6600 info@straumur.com
Straumur selur hlut sinn í Wood & Company
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.