Þann 10. febrúar tilkynnti Atorka Group hf. (Atorka) um samning um kyrrstöðu til 20. mars 2009 í skuldabréfaflokkum með auðkennið ATOR 07 2 og ATOR 06 1 við viðskiptabanka félagsins. Á því tímabili féllu vaxtagjalddagar í flokkum ATOR 05 1, ATOR 07 4 og JRDB 04 1, sem Atorka greiddi til allra aðila sem standa fyrir utan kyrrstöðusamninginn. Atorka vinnur nú að frekari framlengingu á kyrrstöðusamningnum í góðri samvinnu við aðila samkomulagsins og mun félagið tilkynna um niðurstöðu um leið og hún liggur fyrir.