Hf. Eimskipafélag Íslands birtir uppgjör fyrstu þriggja mánaða 2009, sem lauk 31. janúar 2009, þann 31. mars eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 1. apríl, í húsakynnum Eimskips, Sundakletti, að Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega kl. 08:30 og boðið verður upp á morgunverð. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, kynnir afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Hf. Eimskipafélags Íslands www.eimskip.is. Vinsamlega hafið samband við Heiðrúnu Jónsdóttur fyrir nánari upplýsingar, 825-7370 eða heidrun@eimskip.is.