EBITDA fyrir kostnað vegna endurskipulagningar 109 milljónir punda á árinu Fjármögnun rekstrarfélaga Bakkavarar að fullu tryggð næstu þrjú árin 144 milljón pund af innstæðu hjá Nýja Kaupþingi innleyst Verulegur einskiptiskostnaður hafði áhrif á hagnað tímabilsins Salan hélst góð þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi • Velta 1,6 ma.punda á árinu, 10% aukning, og 412,5 m.punda á fjórða ársfjórðungi, 11% aukning • Söluaukning í undirliggjandi rekstri 1,9% á árinu og 5,1% á ársfjórðungnum • EBITDA fyrir kostnað vegna endurskipulagningar 108,5 m.punda á árinu, 27% lækkun, og 15,7 m.punda á fjórða ársfjórðungi, 53% lækkun. EBITDA hlutfall fyrir kostnað vegna endurskipulagningar nam 6,7% á árinu og 3,8 % á fjórða ársfjórðungi • Tap 154,2 m. punda á árinu, samanborið við hagnað að upphæð 47,4 m. punda árið 2007. Tap á fjórða ársfjórðungi 98,5 m. punda, samanborið við hagnað að upphæð 10,4 m.punda árið 2007. • Einskiptiskostnaður 177 m.punda, m.a. vegna kostnaðar af hagræðingaraðgerðum á tímabilinu, taps af fjárfestingu félagsins í Greencore Group, taps af gangvirðisbreytingum vaxtaskiptasamninga og gengistaps af erlendum lánum félagsins, auk áhrifa gjaldfærslu skatta vegna afnáms skattaívilnunar á iðnaðarhúsnæði í Bretlandi á tímabilinu • Handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti 45,7 m. punda á árinu, 67% lækkun, og handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti á ársfjórðungnum var neikvætt um 22,7 m.punda, samanborið við innflæði handbærs fjár fyrir skatta og vexti 27,6 m. punda á fjórða ársfjórðungi 2007 Ágúst Guðmundsson, forstjóri: „Þrátt fyrir krefjandi umhverfi höfum við náð að tryggja fjármögnun allra rekstrarfélaga Bakkavarar, styrkja rekstrargrundvöll félagsins og viðhaldið sölu þrátt fyrir almennt minnkandi eftirspurn á mörkuðum félagsins. Það er mér sérstök ánægja að greina frá því að við höfum tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga Bakkavarar til næstu þriggja ára eða fram til 30. mars 2012. Samningarnir sýna tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar og eru mikilvæg skilaboð til viðskiptavina, birgja, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila um trygga fjárhagslega stöðu rekstrarfélaganna. Við höfum jafnframt innleyst 144 milljónir punda af 150 milljóna punda innstæðu félagsins hjá Nýja Kaupþingi frá þriðja ársfjórðungi 2008, en gert er ráð fyrir að eftirstöðvar verði innleystar um miðjan apríl. Viðræður standa yfir við lánveitendur móðurfélagsins, en af viðræðum við stærstu eigendur skuldabréfa félagsins má ráða að þeir styðji við áætlanir félagsins um framlengingu á gjalddögum bréfanna. Einskiptiskostnaður hafði mikil áhrif á afkomu og sjóðstreymi Bakkavarar árið 2008, m.a. vegna hagræðingaraðgerða á tímabilinu og taps á fjárfestingu í Greencore Group Plc auk þess sem rekstrarumhverfið var afar krefjandi. Við höfum hins vegar náð árangri í að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni, auka hagkvæmni í rekstri og auka markaðshlutdeild í nokkrum af lykilvöruflokkum félagsins. Við gerum ráð fyrir að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi en teljum jafnframt að þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í, ásamt áframhaldandi áherslu á forgangsverkefni félagsins, geri það vel í stakk búið til að takast á við núverandi aðstæður og mæta breyttri eftirspurn neytenda. Í ljósi þessa gerum við ráð fyrir að félagið skili á ný góðri afkomu og auknu sjóðstreymi á þessu ári.“