Tap 1.619 milljónir króna Helstu niðurstöður ársreiknings Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2008: • Tap varð 1.619 milljónir króna eftir skatta samanborið við 255 milljóna króna hagnað á árinu 2007. Fyrir skatta nam tapið 1.879 milljónum króna samanborið við 307 milljóna króna hagnað á árinu 2007. • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var neikvæð um 80,7% samanborið við 19,5% arðsemi á árinu 2007. • Hreinar vaxtatekjur hækkuðu um 12,1% frá fyrra ári og voru 153 milljónir króna. • Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 951 milljón króna en voru jákvæðar um 661 milljón króna á árinu 2007. Munar þar mestu um niðurfærslu á eignarhlutum sparisjóðsins í Sparisjóðabanka Íslands og öðrum fjármálafyrirtækjum. • Framlag í afskriftareikning útlána nam 667 milljónum króna samanborið við var 127 milljónir króna árið 2007. Þessi hækkun er að mestu leiti tilkomin vegna afskrifta útlána sparisjóðsins í erlendum myntum. • Heildareignir námu 10.946 milljónum króna í árslok 2008 og hafa aukist um 18,2% á árinu. • Útlán til viðskiptamanna námu 7.187 milljónum króna í árslok 2008 og jukust um 41,5%. Stærstan hluta aukningarinnar má rekja til gengishækkunar útlána í erlendum myntum ásamt hækkunar á verðtryggðum útlánum. • Innlán námu 3.768 milljónum króna í lok ársins 2008, sem er 15,1% aukning frá fyrra ári. • Eigið fé nam 234 milljónum króna í lok ársins 2008 og lækkar um um 88,3% á árinu. CAD-eiginfjárhlutfall var 2,4% í lok ársins samanborið við 15,1% í árslok 2007. Ársreikningur Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2008 endurspeglar þær sviptingar sem urðu fjármálamarkaði á árinu. Sparisjóðurinn varð fyrir miklu tjóni í bankahruninu síðastliðið haust og hefur gengið svo á eigið fé sparisjóðsins að hann uppfyllir ekki lengur kröfur um lágmarks eiginfjárhlutfall fjármálastofnana. Til að uppfylla eiginfjárkröfur hefur sparisjóðurinn sótt um eiginfjárframlag frá Ríkissjóði Íslands á grundvelli neyðarlaga nr. 125/2008 og mun framlag ríkissjóðs til sparisjóðsins nema allt að 401 milljón króna. Einnig liggur tillaga fyrir stofnfjárfundi um allt að 300 milljón króna aukningu stofnfjár til viðbótar framlagi ríkissjóðs. Þá hefur verið ráðist í hagræðingaraðgerðir innan sparisjóðsins til að draga úr rekstrarkostnaði. Horfur fyrir árið 2009 eru jákvæðar að því tilskildu að sparisjóðurinn fái eiginfjárframlag frá Ríkissjóði Íslands og stöðugleiki komist á í íslensku fjármálalífi. Aðalfundur Sparisjóðs Bolungarvíkur verður haldinn fimmtudaginn 7. maí n.k. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri, netfang: asgeir@spbol.is í síma 450-7100. Lykiltölur úr rekstri Sparisjóðs Bolungarvíkur árið 2008 Sjá viðhengi.
- Afkoma Sparisjóðs Bolungarvíkur á árinu 2008
| Source: Sparisjóður Bolungarvíkur