Í dag 6. apríl 2009 er vaxtagjalddagi á skuldabréfaflokkunum ATOR 07 6 og ATOR 07 7 sem hefur ekki verið greiddur. Eigendur flokkanna eru aðilar að kyrrstöðusamningi sem rann út þann 31. mars sl. Eins og kom fram í tilkynningu frá Atorku Group hf. þann 1. apríl er unnið að framlengingu á kyrrstöðusamningi. Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 540-6200.