Afkoma VBS fjárfestingarbanka á árinu 2008 Ekki er ofsagt að árið 2008 hafi verið ár breytinga og uppstokkunar á íslenskum fjármálamarkaði. Árið var án efa það erfiðasta í 13 ára sögu VBS fjárfestingarbanka og einkenndist af þröngri lausafjárstöðu á fyrri hluta árs, samdrætti á fasteignamarkaði og loks hamförum á íslenskum fjármálamarkaði með falli Landsbanka, Glitnis og Kaupþings. Ársreikningur VBS fjárfestingarbanka fyrir árið 2008 endurspeglar þessar óvenjulegu aðstæður. Nýverið var gengið frá samkomulagi um skuldbindingar bankans við Ríkissjóð. Skuld þessi varð til vegna milligöngu VBS um lánafyrirgreiðslu Seðlabanka Íslands til tveggja af hinum föllnu bönkum en við hrun þeirra setti VBS tryggingar fyrir skuldinni að upphæð 26 milljarða króna. Andvirði lánsins frá ríkissjóði var nýtt til uppgjörs við Seðlabanka og ber að greiða það á næstu 7 árum með 2% verðtryggðum vöxtum. Bankinn gekkst undir margvísleg skilyrði með samkomulaginu, svo sem varðandi lágmarks eigið fé, takmörkun á arðgreiðslum og fleira. Með samkomulaginu er tryggt að Ríkissjóður og þar með skattgreiðendur fái að fullu greiddar skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna viðskiptanna. Í samræmi við lög og reikningsskilaaðferðir gætir áhrifa samkomulagsins í uppgjöri til hækkunar á rekstrartekjum. Í heild er því hagnaður eftir skatta 1.1 milljarður króna sem jafngildir 13,4% ávöxtun eigin fjár á árinu. Eigið fé bankans nemur um 8,9 milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall (CAD) 17,4% í árslok árið 2008. Starfsmannafjöldi VBS í lok árs 2008 var svipaður því sem var í upphafi árs en veruleg breyting hefur þó orðið á viðfangsefnum og störfum margra starfsmanna. Þá hefur áherslan í starfsmannahaldi einkennst af breyttum viðfangsefnum bankans. Þannig eru fleiri starfandi við umsýslu fasteigna og við fjármögnun, en færri að störfum við verðbréfamiðlun og eigin fjárfestingar bankans. Áætlanir bankans fyrir árið 2009 gera ráð fyrir aðgerðum til enn frekari styrkingar eigin fjár og hafa nú þegar verið stigin skref í þá átt. Þá er áfram gert ráð fyrir því að þjónusta við fagfjárfesta, fyrirtæki, einstaklinga og félagasamtök, verði ríkur þáttur í starfssemi bankans, líkt og verið hefur frá upphafi. Helstu niðurstöður úr ársreikningi VBS fjárfestingarbanka fyrir árið 2008: • Hagnaður bankans eftir skatta árið 2008 nam 1,1 milljarði króna sem er 29,3% lækkun frá árinu 2007. • Hagnaður fyrir skatta nam 1,6 milljarði króna, sem er 9,9% lækkun frá árinu 2007. • Hreinar vaxtatekjur ársins 2008 fyrir færslu fjárskuldar til gangvirðis lækkuðu um 23% frá fyrra ári. • Rekstrartekjur án gangvirðisfærslu lækkuðu um 78% en þrefölduðust að henni meðtalinni. • Þóknunartekjur drógust saman um 58% á milli ára, námu 624 milljónum króna árið 2008 samanborið við 1.497 milljónir árið 2007 . • Arðsemi eigin fjár fyrir skatta jafngilti 19,2% ávöxtun á ársgrundvelli. • Arðsemi eigin fjár eftir skatta jafngilti 13,4% ávöxtun á ársgrundvelli. • Heildareignir bankans jukust um 60% milli ára og námu í árslok um 56,3 milljörðum króna. • Framlög í afskriftareikning útlána námu 6,8 milljörðum króna, í árslok nam afskriftareikningurinn 7,3 milljörðum króna. • Handbært fé bankans nam 194 milljónum króna þann 31. desember 2008 • Eigið fé bankans hefur vaxið um 7,5% á árinu og nam 8,9 milljörðum króna í lok ársins 2008 samanborið við 8,3 milljarða króna árið 2007. Horfur fyrir árið 2009 Þegar litið er fram á veginn eru margir óvissuþættir í ytra umhverfi fjármálastofnanna sem geta haft áhrif á afkomu VBS fjárfestingarbanka sem og annarra fyrirtækja á Íslandi. Á heildina litið hefur þó ýmislegt áunnist og þokast í rétta átt. Það er okkar trú að í erfiðleikunum felist mikilsverð viðskiptatækifæri fyrir bankann. Framundan eru því krefjandi verkefni s.s. umsókn um viðskiptabankaleyfi sem opnar nýja möguleika til útvíkkunar á starfsemi bankans. Auk nýrra tækifæra mun bankinn áfram einbeita sér að eflingu kjarnastarfseminnar með það að markmiði að leggja sitt af mörkum til að taka þátt í uppbyggingu íslensks athafnalífs. Nánari upplýsingar veitir Jón Þórisson, forstjóri VBS fjárfestingarbanka í síma 842-2202
- Ársreikningur 2008
| Source: VBS Fjárfestingarbanki hf.