Stjórn Íslandssjóða hf. (áður Glitnis Sjóða), sem rekur Verðbréfasjóði, Fjárfestingarsjóði og Fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2008. Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2008 ● Tap fært á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og Fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 68 m.kr. árið 2008 samanborið við hagnað uppá 19.302 árið 2007. ● Hreinar rekstrartekjur námu 2.004 m.kr. samanborið við 1.937 m.kr. árið áður, jukust um 3,5% ● Rekstrargjöld námu 1.215 m.kr. samanborið við 1.599 m.kr. árið áður. ● Heildareignir félagsins námu 2.470 m.kr. í árslok en voru 764 m.kr. í ársbyrjun. ● Eigið fé í árslok 2008 nam 1.031 m.kr. en var 358 m.kr. í ársbyrjun ● Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 107,7% í árslok 2008 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. ● Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 132.904 m.kr. í lok ársins samanborið við 238.075 m.kr. í árslok 2007, drógust því eignir í stýringu saman um 44,2% á árinu 2008. ● Íslandssjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sjö sjóðsdeildum í Verðbréfasjóðum, fjórum sjóðsdeildum í Fjárfestingarsjóðum og tveimur sjóðsdeildum í Fagfjárfestasjóðum. Einnig sér félagið um stýringu á einum verðbréfasjóði og einum vogunarsjóði í Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg. Heildareignir í stýringu Íslandssjóða hf. í Lúxemborg eru 2.433 m.kr. ● Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur ársreikning Verðbréfasjóða og Fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. ● Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta árið 2008 nam 673,3 m.kr. samanborið við 275,2 m.kr. árið 2007. Neikvæð ávöxtun var hjá tveimur Verðbréfasjóðum, þ.e. Sjóði 1 sem er fyrirtækjaskuldabréfasjóður og Sjóði 6 sem er hlutabréfasjóður og einum Fjárfestingarsjóði, Sjóði 10 sem er hlutabréfasjóður. ● Athygli er vakin á því að fjárfestingarstefna er hlutlaus staða viðkomandi sjóðs og til að ná betri árangri í stýringu eru vikmörk notuð sem er tilgreint hámark og lágmark. Allur þessi rammi er fjárfestingarstefna viðkomandi sjóðs. Öllum sjóðum nema Sjóði 6 er stýrt skv. virkri stýringu til að ná betri árangri í ávöxtun en stefnan (hlutlaus) gerir ráð fyrir. ● Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2008. Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi. Afkoma Verðbréfasjóða fyrir árið 2008 ● Tap Verðbréfasjóða fært á hlutdeildarskírteini árið 2008 nam 642 m.kr., samanborið við hagnað uppá 3.950 m.kr. árið 2007. ● Hrein eign Verðbréfasjóða nam 80.032 m.kr. samanborið við 70.528 m.kr. árið 2007. Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi. Afkoma Fjárfestingarsjóða fyrir árið 2008 ● Hagnaður Fjárfestingarsjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2008 nam 574 m.kr., samanborið við 15.352 m.kr. árið 2007. ● Hrein eign Fjárfestingarsjóða nam 6.232 m.kr. samanborið við 152.543 m.kr. árið 2007. Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhegni. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Eignastýringu Íslandsbanka, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandsbanki.is/sjodir frá og með 28. apríl 2009. Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandsssjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, fram¬kvæmda¬stjóri félagsins í síma 440-4917.