Uppgjör 365 hf. (Íslenskrar afþreyingar hf.) fyrir árið 2008 verður ekki birt vegna heimildar til undanþágu birtingar skv. lögum um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Á grundvelli 2. mgr. 56. gr. laganna er félögum, sem eingöngu hafa skráð skuldabréf, heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll ef fjárhæð nafnverðs eininga skuldabréfanna er að lágmarki jafngilt 4,6 millj. króna (fjárhæðin er grunnfjárhæð sem er bundin gengi evru þann 3. janúar 2007). Ársreikningur verður lagður fyrir aðalfund félagsins. Nánari upplýsingar veitir Hildur Sverrisdóttir í síma 512-5519
- Ársreikningur 2008 verður ekki birtur
| Source: Íslensk afþreying hf.