Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf. rekstrartímabilið 1. janúar 2008 - 31. desember 2008 Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti í dag uppgjör félagsins fyrir síðastliðið rekstrarár. Ársreikningaskrá hefur gefið félaginu leyfi til að birta uppgjör sitt í evrum frá 1. janúar 2008 og er það því birt í þeirri mynt frá þeim tíma. Samanburðartölur fyrir árið 2007 eru þýddar úr ISK yfir í EUR, samkvæmt IFRS reikningsskilastöðlum, á árslokagengi 2007 sem þá var 91,2. Í uppgjörinu kemur meðal annars fram eftirfarandi: 1,2 milljón evra tap á rekstrarárinu • Tap rekstrarársins var tæplega 1,2 milljónir evra en tæplega 7 milljón evra hagnaður var á rekstrinum á árinu 2007. • Heildartekjur félagsins voru 63,1 milljónir evra og jukust um 1,5 milljónir evra frá fyrra ári. Tekjur fiskvinnslu lækkuðu um tæpar 1,3 milljónir evra og tekjur útgerðar lækkuðu lítillega en tekjur vörusölu, endursölu mjöls og lýsis, jukust töluvert frá fyrra ári eða um 2,6 milljónir evra. • Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 15,2 milljónum evra eða 24% af heildartekjum og jókst um 1,9 milljónir evra frá fyrra ári en þá var framlegðarhlutfall 21,5%. • Veltufé frá rekstri nam tæpum 5,2 milljónum evra á árinu og var 8,2% af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri dróst saman um 54% frá fyrra ári þegar það nam 11,3 milljónum evra. • Afskriftir lækkuðu um 2,7 milljónir evra frá fyrra ári og námu 4,9 milljónum evra. Lækkunin felst fyrst og fremst í aukafyrningum sem komu til á fyrra rekstrarári en ekki á þessu rekstrarári. • Niðurstaða fjármagnsliða var neikvæð um 10,8 milljónir evra. Gengistap nam 8 milljónum evra en á síðasta rekstrarári var gengishagnaður 3,7 milljónir evra. • Tekjur Hugins ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 1.552 milljónir króna. Framlegð félagsins á tímabilinu var 449 milljónir króna og jókst um 260 milljónir króna frá fyrra ári. Tap félagsins eftir skatta nam 946 milljónum króna, þar af nam gengistap félagsins 1.298 milljónum króna. Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í tapi Hugins ehf. nam 3,6 milljónum evra. • Tekjur About Fish ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 1.645 milljónir króna og framlegð félagsins á tímabilinu var 63,5 milljónir króna. Tap eftir skatta nam 12 milljónum króna á árinu og var hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í tapinu 29 þúsund evrur. • Vinnslustöðin keypti á árinu 35% hlutafjár Ufsabergs-útgerðar ehf. sem á togskipið Gullberg VE-292. Vinnslustöðin hefur leigt skipið ásamt aflaheimildum þess frá 15. júní 2008. Tekjur félagsins voru 352 milljónir króna og framlegð tímabilsins var 95 milljónir króna. Tap eftir skatta nam 470 milljónum króna á árinu og var hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í tapinu 1,6 milljónir evra. • Félagið stendur að rannsóknar- og þróunarvinnu við veiðar og vinnslu á humri. Lítill kostnaður hefur fallið til vegna rannsóknaverkefnanna. Efnahagur í árslok Eignir félagsins lækkuðu um 4,9 milljónir evra frá byrjun árs til ársloka. Heildarskuldir og skuldbindingar Vinnslustöðvarinnar hf. stóðu nánast í stað frá upphafi árs til ársloka og eru 68,2 milljónir evra. Nettóskuldir eru 50,5 milljónir evra en þær voru 44,5 milljónir evra í lok árs 2007 og hækkuðu því um 6 milljónir evra. Eigið fé lækkaði frá áramótum um 4,8 milljónir evra. Breytingin skýrist annars vegar af lækkun vegna taps ársins að upphæð tæplega 1,2 milljónir evra og hins vegar af lækkun vegna útgreiðslu arðs að upphæð rúmar 3,6 milljónir evra. Rekstrarhorfur á yfirstandandi ári Rekstrarhorfur á yfirstandandi rekstrarári eru sæmilegar. Loðnuveiðar eru mikilvægar í rekstri félagsins og loðnubresturinn í vetur hefur því mikil áhrif á horfur ársins. Félagið tók við töluverðu magni af gulldeplu til bræðslu í vetur sem vegur þó lítillega upp loðnuleysið. Auk loðnubrests hefur afurðaverð hríðlækkað á mörkuðum erlendis. Ljóst þykir því að framlegð ársins 2009 verði lægri en hún var árið 2008. Afskráning Vinnslustöðvarinnar hf. úr OMX Nordic Exchange Þann 14. nóvember 2008 var hlutafé félagsins afskráð úr kauphöllinni OMX Nordic Exchange. Félagið er hinsvegar með skráð skuldabréf í kauphöllinni. Aðalfundur og tillögur um arð Ákveðið hefur verið að halda aðalfund félagsins föstudaginn 8. maí 2009 í Akógeshúsinu og hefst fundurinn kl. 16:00. Stjórn félagsins gerir tillögu um að enginn arður verði greiddur á árinu. Birtingardagatal Vinnslustöðvarinnar hf. 1. janúar - 30. júní 2009 Vikan 3. - 7. ágúst 2009 Ársuppgjör 2009 Vikan 19. - 23. apríl 2010 Aðalfundur 8. maí 2009 Greiðsla arðs Stjórnin leggur til að enginn arður verði greiddur á árinu. Frekari upplýsingar: Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri í símum 488 8004 og 897 9607 Vinnslustöðin hf. www.vsv.is
- Birting uppgjörs fyrir rekstrarárið 1. janúar - 31. desember 2008
| Source: Vinnslustöðin hf.