• Þrír stjórnarmenn af fjórum óháðir Íslandsbanka • Fyrirtækið var með tæplega 133 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót Ný stjórn Íslandssjóða hefur tekið til starfa en fyrirtækið er dótturfélag Íslandsbanka og rekur verðbréfa- og fjárfestingasjóði bankans. Ný stjórn félagsins samanstendur af eftirfarandi aðilum: Ársæll Valfells, viðskiptafræðingur Bolli Héðinsson, hagfræðingur Elín Jónsdóttir, lögfræðingur Steinunn Bjarnadóttir, forstöðumaður reksturs og innra eftirlits Eignastýringar Íslandsbanka Leitast var við að hafa stjórn Íslandssjóða óháða bankanum, og því er einungis einn af fjórum stjórnarmönnum í aðalstjórn félagsins starfsmaður bankans. Varastjórn skipa þau Erna Eiríksdóttir, Kristrún Auður Viðarsdóttir, Reimar Snæfells Pétursson og Stefán Sigurðsson. Íslandssjóðir eru leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á íslenska markaðnum og var með tæplega 133 ma. króna í stýringu við síðustu áramót. Fyrirtækið er í fremstu röð á Íslandi þegar kemur að rekstri ríkisskuldabréfasjóða, auk þess að reka fjölmarga aðra verðbréfasjóði og annast safnastýringu fyrir fagfjárfesta og lífeyrissjóði. Nánari upplýsingar gefa: Gunnar Kr. Sigurðsson, sérfræðingur á samskiptasviði Íslandsbanka, s. 844 4895 gunnarks@islandsbanki.is Agla Hendriksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, s. 844 4917 agla.hendriksdottir@islandsbanki.is