8. júní 2009 CB Holding ehf. (CB Holding) sem er í meirihluta eigu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur), hefur tekið yfir eignarhaldsfélagið WH Holding Ltd. og dótturfyrirtæki þess, þ.m.t. West Ham United FC plc ("West Ham" eða "félagið"). Í ljósi þess góða árangurs sem forstjóri og yfirþjálfari félagsins hafa náð á nýliðinni leiktíð mun CB Holding styðja núverandi framkvæmdarstjórn til áframhaldandi starfa. Það er því ekki ætlun CB Holding að gera breytingar á framkvæmdarstjórn né breyta núverandi stefnu félagsins. Með hliðsjón af breyttu eignarhaldi hafa formaður og varaformaður stjórnar látið af störfum og hefur Andrew Bernhardt, framkvæmdarstjóri hjá Straumi, verið skipaður stjórnarformaður West Ham. Frekari upplýsingar veitir; Georg Andersen Forstöðumaður Samskiptasviðs Sími: +354 585 6707. georg@straumur.com.
CB Holding tekur yfir knattspyrnufélagið West Ham United
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.