Exista hf. og fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hafa undanfarið átt í viðræðum vegna tilkynningar Exista til fyrirtækjaskrár um hlutafjáraukningu auk fleiri atriða frá 8. desember 2008. Ábendingar höfðu borist félaginu frá fyrirtækjaskrá um að í tilkynningunni væru atriði, sem kynnu að orka tvímælis. Þrátt fyrir að Exista telji tilkynninguna eðlilega hefur félagið afturkallað hana til að eyða öllum efasemdum um réttmæti hennar og í samráði við fyrirtækjaskrá. Eins og fram kom í tilkynningum til Kauphallar 4. og 8. desember 2008 hyggst stjórn Exista leggja til við hluthafafund að hlutafé félagsins verði fært niður. Viðræður Exista við fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna hafa hins vegar valdið töfum á því. Vonast stjórn Exista til þess að unnt verði að leggja tillögu um að færa niður hlutaféð fyrir hlutahafafund sem allra fyrst.
- Afturköllun tilkynningar til fyrirtækjaskrár um hlutafjáraukningu
| Source: Exista hf.