Exista hf. hefur í dag, þriðjudaginn 30. júní, borist úrskurður frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra þess efnis að fyrirtækjaskrá telji tilkynningu um hlutafjárhækkun Exista frá 8. desember 2008 ólögmæta og muni í framhaldinu bakfæra tilkynninguna og lækka skráð hlutafé Exista hjá fyrirtækjaskrá niður í þá fjárhæð sem áður var skráð hjá stofnuninni eða 14.174.767.632 hluti. Miðað við skráningu hlutafjár hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, að teknu tilliti til fyrrnefnds úrskurðar, er BBR ehf., félag í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssona, stærsti hluthafi Exista með 52% eignarhlut. Aðrir hluthafar eiga um 5% eignarhlut eða minna í félaginu. Exista er ósammála úrskurði fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra enda liggur fyrir að framangreind tilkynning var skráð án athugasemda hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra þann 8. desember 2008 og engar athugasemdir bárust félaginu frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra fyrr en meira en sex mánuðum eftir framangreinda skráningu. Exista mun í framhaldi af úrskurði stofnunarinnar fara yfir réttarstöðu sína og áskilur sér allan rétt í þeim efnum.
- Úrskurður fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra
| Source: Exista hf.