- Afkoma af flutningastarfsemi batnar verulega frá því á fyrsta ársfjórðungi - - Virðisrýrnun á eignarhlut í frystigeymslustarfsemi 176,1 milljón evra - Helstu atriði úr uppgjörinu • Rekstrartekjur námu 298,6 milljónum evra (2F 2008: 319,4 milljónir evra) og lækkuðu um 6,5% milli ára. • Rekstrargjöld námu 263,9 milljónum evra (2F 2008: 288,6 milljónir evra) og lækkuðu um 8,6% milli ára. • Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 34,7 milljónum evra, eða 11,6% sem hlutfall af tekjum; EBITDA hækkaði um 12,6% frá fyrra ári þar sem hún var 30,8 milljónir evra, eða 9,6% af tekjum • Heildarfjármagnskostnaður var 22,5 milljónir evra á 2F, að teknu tilliti til gengishagnaðar upp á 6,5 milljónir evra • Tap af áframhaldandi starfsemi var 190,2 milljónir evra • Tap af aflagðri starfsemi var 24,3 milljónir evra • Tap eftir skatta var 214,5 milljónir evra á 2F samanborið við 100,8 milljóna evra tap á 2F 2008 • Heildareignir í lok fjórðungsins voru 1.540,6 milljónir evra • Heildarskuldir í lok fjórðungsins voru 1.931,0 milljónir evra • Eigið fé í lok fjórðungsins var neikvætt um 390,4 milljónir evra Fréttatilkynning í viðhengi
CORRECTION: Afkoma Eimskips neikvæð um 214,5 milljónir evra á 2F 2009
| Source: Hf. Eimskipafélag Íslands