Í tilkynningu dags. 28. maí 2009 um fyrirhugað yfirtökutilboð var samanlagður eignarhlutur samstarfsaðila oftalinn um 2.100.000 hluti eða 0,04% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og atkvæðisrétti. Samanlagður eignarhlutur þeirra sem á þeim tíma höfðu gerst aðilar að samstarfi um stjórn og rekstur Alfesca hf. nam 3.961.836.633 hlutum eða 67,40% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og 67,79% af atkvæðisrétti (en ekki 3.963.936.633 hlutum eða 67,44% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og 67,83% af atkvæðisrétti eins og ranglega var tilgreint). Þeir stjórnendur Alfesca og tengdir aðilar sem á þeim tíma höfðu gerst aðilar að samstarfinu áttu samtals 64.740.311 hluti eða 1,10% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og 1,11% af atkvæðisrétti (en ekki 66.840.311 hluti eða 1,14% af útgefnu hlutafé og atkvæðisrétti eins og ranglega var tilgreint). Að öðru leyti hefur leiðrétting þessi ekki áhrif á þær upplýsingar sem komu fram í tilkynningunni. Rétt er að taka fram að þann 22. júní 2009 gengu fleiri stjórnendur til liðs við samstarfsaðilana og var því samanlagður eignarhlutur samstarfsaðila meiri en hér greinir þegar opinbert tilboðsyfirlit var dagsett þann 25. júní 2009.