Lur Berri Iceland ehf. hefur borist ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að framlengja gildistíma yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. dagsettu 25. júní 2009 um 18 daga frá og með 30. júlí 2009 eða til kl. 16:00 þann 17. ágúst 2009, sbr. 6. mgr. 103. gr. laga nr. 107/2008 um verðbréfaviðskipti. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um framlengingu yfirtökutilboðsins er tekin vegna kröfu Rekstrarfélags Nýja Kaupþings banka hf. vegna sjóðanna Kaupthing ÍS-5, Kaupþing ÍS-15 og ICEQ verðbréfasjóður, Gildis lífeyrissjóðs, Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs sem eru hluthafar í Alfesca hf. og eiga samtals 679.756.524 hluti í Alfesca hf. eða 11,57% hlutafjár. Sömu aðilar hafa jafnframt óskað eftir að haldinn verði hluthafafundur í Alfesca hf. þar sem lagt er til að yfirtökutilboðið verði rætt, ásamt fyrirætlunum um afskráningu og mati á verðmæti hlutabréfa Alfesca hf. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins má finna á heimasíðu stofnunarinnar, http://www.fme.is. Vegna framlengingar yfirtökutilboðsins frestast uppgjör á viðskiptum við þá sem samþykkt hafa yfirtökutilboðið þannig að það verður í síðasta lagi 5 dögum eftir lok gildistímans, sem nú er 17. ágúst 2009, sbr. 7. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.