VIÐBÓT VIÐ FUNDARGERÐ Viðbót við fundargerð Hluthafafundar sem haldinn var 12. ágúst 2009 Fundargerð hluthafafundarins var rituð og birt sama dag og fundurinn var haldinn í samræmi við lög og reglur og starfshætti félagsins og sáu ritari og fundarstjóri um það, eins og fundurinn hafði samþykkt. Í kjölfar þess að fundargerðin var birt barst félaginu bréf þar sem farið var fram á að ákveðinna mála, sem rædd voru á fundinum, yrði getið í fundargerð. Félagið hefur ákveðið í samráði við fundarstjóra að verða við þessari ósk með því að birta bréfið sem viðbót við fundargerð hluthafafundarins.