Aðalfundur Exista hf. var haldinn í dag 26. ágúst 2009. Fyrir fundinn voru lagðar fram tillögur um breytingar á 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 15. gr. samþykkta félagsins. Tillaga um breytingu á 1. mgr. 4. gr. var dregin til baka en breyting á 1. mgr. 15. gr. var samþykkt samhljóða. Aðalfundur Exista hf. samþykkti samhljóða kröfu hluthafa sem lögð var fram á fundinum á grundvelli 3. mgr. 84. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög að fresta staðfestingu ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og ákvörðun um hvernig farið skuli með tap félagsins fyrir síðastliðið reikningsár til framhaldsaðalfundar sem haldinn verður 19. október 2009, kl. 10:00 að Ármúla 3, Reykjavík. Nýjar samþykktir Exista hf. ásamt ræðu formanns stjórnar Exista hf., Lýðs Guðmundssonar, er að finna í viðhengi.
- Niðurstöður aðalfundar Exista haldinn 26. ágúst 2009
| Source: Exista hf.