Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. hefur tekið ákvörðun um að slíta ICEQ verðbréfasjóði. Rekstrarfélagið mun óska eftir því við NASDAQ OMX Exchange Iceland hf. að hlutdeildarskírteini sjóðsins verði tekin úr viðskiptum NASDAQ OMX eins fljótt og mögulegt er. Rekstrarfélagið hefur sagt upp viðskiptavakt Nýja Kaupþings banka hf. með hlutdeildarskírteini sjóðsins frá og með deginum í dag. Frekari upplýsingar veitir Sigþór Jónsson, sjóðstjóri, í síma 444 6954, sigthor.jonsson@rkb.is.
ICEQ verðbréfasjóður - ósk um afskráningu hlutdeildarskírteina og uppsögn samnings um viðskiptavakt
| Source: Stefnir hf.