Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest árshlutauppgjör félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2009. Á fyrri hluta ársins annaðist Landsvaki hf. rekstur 26 sjóða um sameiginlega fjárfestingu samanborið við 30 sjóði á sama tímabili 2008 en á tímabilinu voru stofnaðir 2 nýjir sjóðir og 2 sjóðum var slitið. Í lok tímabilsins nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 44,3 milljörðum króna. Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. • Ársreikningurinn hefur verið kannaður af KPMG sem telur ekkert benda til þess að reikningurinn gefi ekki glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu sex mánuðum ársins 2009, efnahag þess 30. júní 2009 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaðia við fall bankanna í byrjun október 2008 hafa haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins og orsakað að heildareignir í stýringu hafa minnkað verulega. Hagnaður varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 96,9 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka þann 30.6.2009 nam 238,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, reiknað samkvæmt ákvæðum 84.gr. laga um fjármálafyrirtæki, nam 44,9%. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406
- 6 mánaða uppgjör 2009
| Source: Landsvaki