Exista hafa borist stefnur frá Glitni banka hf. og HAF Funding 2008-1 Limited þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði félögunum samtals tæplega 5,9 milljarða króna vegna lánasamninga sem upphaflega voru gerðir við Glitni banka hf. Exista mun taka til varna í báðum málum enda hefur félagið gert upp kröfur Glitnis banka hf. og tengdra félaga með skuldajöfnuði þar sem Exista á kröfur á Glitni banka hf. á grundvelli gjaldmiðlasamninga. Gjaldmiðlasamningar eins og þeir sem gerðir voru við Glitni banka hf. voru gerðir til að verjast gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en Exista færði reikninga sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda félagsins voru í erlendri mynt. Þótt Exista hafi með þessum hætti leitast við að verja eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar ávallt neikvæð áhrif á eigið fé Exista. Exista hefur allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október 2008 leitast við að ná samningum við skilanefnd Glitnis banka hf. um uppgjör gagnkvæmra krafna en hefur ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna ákvæða laga nr. 125/2008 („neyðarlaganna“). Telur Exista því jákvætt að málið sé nú komið í þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör.
- Exista stefnt
| Source: Exista hf.