Exista hf. birtir í dag uppgjör vegna ársins 2008: • Bókfært eigið fé nam 200 milljónum evra (34 milljarðar króna), lækkaði um rúm 90% • Heildareignir námu 2,3 milljörðum evra (391 milljarður króna), lækkuðu um rúm 70% • Heildarskuldir lækkuðu um 3,5 milljarða evra (602 milljarðar króna), eða 63% • Afkoma eftir skatta var neikvæð um 1,6 milljarð evra á árinu (206 milljarða króna) • Fall Kaupþings banka hf. og sala eignarhluta Exista í Sampo Group hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu á árinu 2008 • Exista brást við ytri áföllum á fjórða ársfjórðungi með sölu eigna, meðal annars í Sampo og Storebrand • Söluandvirði eigna notað til að greiða niður skuldir Exista á í viðræðum við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu og framtíð félagsins. Exista bíður niðurstöðu í dómsmálum um uppgjör gjaldmiðlasaminga við Kaupþing banka og Glitni banka. Niðurstöður þeirra mála munu skipta verulegu máli varðandi afkomu félagsins og eigið fé.
- Ársuppgjör Exista fyrir árið 2008
| Source: Exista hf.