Góður ársfjórðungur * Sala 84 milljónir Bandaríkjadala * Góð sala á stoðtækjum, söluvöxtur 11% * EBITDA hlutfall 23% * Hagnaður 7% af sölu * Önnur kynslóð af hátæknihnénu RHEO KNEE * Nýr sölusamningur í Bandaríkjunum * Skráning á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn Jón Sigurðsson, forstjóri: "Við erum ánægð með niðurstöður fjórðungsins. Reksturinn gengur vel og er arðsamur. Sala á stoðtækjum hefur farið fram úr væntingum, vörunýjungar og ný kynslóð af hátæknihnénu RHEO KNEE hafa hlotið góðar móttökur á markaðnum og styrkir það hátæknivörulínu okkar enn frekar. Sala á spelkum og stuðningsvörum er að ná jafnvægi og við erum vongóð um að sjá viðsnúning í sölu á þessari vörulínu á næstu fjórðungum. " The press release including tables, the Investor Presentation Q2 2009 and the Financial Statement Q2 2009 can be downloaded from the following links: