- Bankasýslan tekur við eigendahlutverki ríkisins í fjármálafyrirtækjum og skipar valnefnd til að undirbúa stjórnarkjör í bönkunum


Bankasýsla ríkisins hefur tekið við eigandahlutverki í viðskiptabönkunum
þremur. Lúkning samninga við kröfuhafa verður þó áfram á hendi
fjármálaráðherra. Bankasýslan fer samkvæmt lögum með eigandahlutverk ríkisins í
fjármálafyrirtækjum sem stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að eignast hlut í.
Þeim sem þurfa að hafa samband við ríkið vegna eignarhluta þess í
viðskiptabönkunum er bent á að hafa samband við Bankasýsluna. 

Eins og áður hefur komið fram skipa stjórn Bankasýslu ríkisins þau Þorsteinn
Þorsteinsson rekstrarhagfræðingur, stjórnarformaður, Sonja María Hreiðarsdóttir
lögmaður, varaformaður, Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur og Guðrún Johnsen
hagfræðingur til vara. 

Í samræmi við lög um Bankasýsluna hefur stjórnin skipað valnefnd til að
tilnefna fulltrúa ríkisins til setu í  stjórnum fjármálafyrirtækjanna. Í henni
eiga sæti Kristín Rafnar forstöðumaður skráningarsviðs Nasdaq OMX, formaður,
Friðrik Már Baldursson forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Helga
Valfells sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði Atvinnulífsins. Unnið er
að gerð vefseturs fyrir Bankasýsluna og þar mun fólk sem telur sig uppfylla
hæfisskilyrði fyrir setu í bankaráðum og stjórnum fjármálafyrirtækja geta gefið
kost á sér. Stjórnin hefur samþykkt starfsreglur valnefndarinnar. 

Samkvæmt samningum við skilanefndir gömlu bankanna á ríkið rétt á að kjósa einn
mann í bankaráð Íslandsbanka, fjóra menn í bankaráð Nýja Kaupþings sem þó
fækkar í einn ef Kaupþing ákveður að yfirtaka meirihlutann í Nýja Kaupþingi og
ennfremur fjóra menn í bankaráð Landsbankans. 

Þá hefur stjórn Bankasýslunnar auglýst starf forstjóra stofnunarinnar laust til
umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út 2. nóvember. 

Fjármálaráðuneytinu, 27. október 2009


------ 
Sem viðhengi fylgir auk fréttatilkynningarinnar samþykktar starfsreglur
valnefndarinnar. 

Nánari upplýsingar veitir: 
Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins. 
Netfang: thorsteinn.thorsteinsson@bankasysla.is 
Sími: 891-8913.

Attachments

starfsreglur-valnefndar-bankasysla.pdf fjarmalaraduneytid_frettatilkynning_72-2009.pdf