Góður ársfjórðungur
- Sala 84 milljónir Bandaríkjadala
- Góð sala á stoðtækjum, söluvöxtur 11%
- EBITDA hlutfall 23%
- Hagnaður 7% af sölu
- Önnur kynslóð af hátæknihnénu RHEO KNEE
- Nýr sölusamningur í Bandaríkjunum
- Skráning á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Við erum ánægð með niðurstöður fjórðungsins. Reksturinn gengur vel og er arðsamur. Sala á stoðtækjum hefur farið fram úr væntingum, vörunýjungar og ný kynslóð af hátæknihnénu RHEO KNEE hafa hlotið góðar móttökur á markaðnum og styrkir það hátæknivörulínu okkar enn frekar. Sala á spelkum og stuðningsvörum er að ná jafnvægi og við erum vongóð um að sjá viðsnúning í sölu á þessari vörulínu á næstu fjórðungum. "
The press release including tables, the Investor Presentation Q2 2009 and the Financial Statement Q2 2009 can be downloaded from the following links: