Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 2.000 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Ásamt þessu verður flokkurinn stækkaður um 200 mkr sem haldið verður eftir til fyrirgreiðslu til handa viðskiptavökum. Heimilt er að stækka skuldabréfaflokkinn um allt að 5.800 mkr á árinu. Umsjón með sölu skuldabréfanna hefur MP banki. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321