Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2009 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 14. apríl 2010. Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum og verður seinni umræða þann 12. maí 2010 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð. Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar 2009 var tekinn til fyrri umræðu 14. apríl 2009
| Source: Grindavíkurbær