Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 15/2010 Reykjavík, 27. apríl 2010 GÓÐUR ÁRANGUR Á FYRSTA FJÓRÐUNGI Sala- Salan á fyrsta ársfjórðungi var góð og jókst um 8%, mælt í staðbundinni mynt. Salan nam alls 86 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 77 milljónir dala á fyrsta ársfjórðungi 2009. Góður vöxtur var í sölu á tveimur stærstu vöruflokkum félagsins. Sala á stoðtækjum jókst um 11% og vöxtur í sölu á spelkum og stuðningsvörum nam 6%. Arðsemi - Össur sýnir áfram góða arðsemi. EBITDA nam 18 milljónum Bandaríkjadala eða 21% af sölu og framlegðin nam 54 milljónum dala, eða 63% af sölu. Hagnaður á tímabilinu nam 10 milljónum Bandaríkjadala eða 11% af sölu, sem er 28% aukning frá fyrsta ársfjórðungi 2009. Jón Sigurðsson, forstjóri: "Við erum ánægð með árangur félagsins á fyrsta fjórðungi. Sala á stoðtækjum gengur áfram vel og staðfestir góðan árangur bionic vörulínunnar. Á fjórðungnum varð mikil aukning í sölu á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum og styrkir það okkur í þeirri trú að við höfum innleitt rétt sölufyrirkomulag sem mun gera félaginu kleift að nýta betur markaðstækifæri. Á fjórðungnum voru tólf nýjar vörur kynntar, en þær eru mikilvægur liður í áframhaldandi vexti." Helstu áfangar á fyrsta fjórðungi: * Góð frammistaða í spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum - Sala á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum jókst í takt við vöxt á markaðnum Þessi árangur fylgir í kjölfarið á umfangsmiklum breytingum sem voru gerðar á sölufyrirkomulagi í Bandaríkjunum. Sala á spelkum og stuðningsvörum hjá EMEA dróst saman á fjórðungnum. * Frábær frammistaða í stoðtækjum - Sala á stoðtækjum gekk mjög vel á öllum mörkuðum. Framúrskarandi árangur bionic vörulínunnar heldur áfram og nemur bionic salan á fjórðungnum 12% af sölu stoðtækja. * Nýjar vörur - Á fyrsta ársfjórðungi voru tólf nýjar vörur kynntar, sex stoðtækjavörur og sex spelkur og stuðningsvörur. Mikilvægustu vörurnar eru Miami J hálskraginn, sem er mikilvæg viðbót í flokk fyrir mænuvörur og Rebound Air Walker sem hefur skapað mikla eftirvæntingu á markaðnum. Heilbrigðisfrumvarp í Bandaríkjunum - Á fyrsta ársfjórðungi varð heilbrigðisfrumvarpið í Bandaríkjunum að lögum. Frumvarpið mun hafa áhrif á rekstur Össurar í Bandaríkjunum, en hins vegar er óvissa um áhrifin þar sem vissir þættir frumvarpsins geta enn breyst. Þeir þættir frumvarpsins sem líklega munu hafa hvað mest áhrif á félagið koma að öllum líkindum ekki til framkvæmda fyrr en á árunum 2013 og2014. Áætlun fyrir 2010 - Í kjölfar góðrar afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi hafa stjórnendur uppfært áður birta áætlun fyrir árið. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir innri vexti sem nemur 4-6% og innri EBITDA vexti yfir 10%, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt. Fyrri áætlun gerði ráð fyrir 3-4 % innri vexti og 8-10% innri EBITDA vexti, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt. Símafundur kl. 10:00 þriðjudaginn 27. apríl Í dag, þriðjudaginn 27. apríl, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 1. ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinniwww.ossur.com/investors <http://www.ossur.com/investors> Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru: Evrópa: + 44 (0) 207 509 5139 Bandaríkin: +1 718 354 1226 Ísland: 800 9313 Nánari upplýsingar Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044 Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors <http://www.ossur.com/investors> [HUG#1408462]