Árshlutauppgjör Ríkisútvarpsins ohf. 28.2.2010 Ríkisútvarpið skilaði hagnaði upp á rúmlega 33 milljónir króna fyrstu sex mánuði yfirstandandi rekstrarárs, 1.9.2009 -28.2.2010. Þetta er jákvæður viðsnúningur upp á tæplega 400 milljónir króna miðað við sama tímabil á síðasta rekstrarári, þegar tap félagsins var rúmlega 365 milljónir króna. Eignir RÚV í lok tímabilsins nema tæplega 5,8 milljörðum króna, bókfært eigið fé er rúmlega 548 milljónir króna og eiginfjárhlutfall félagsins 9,47%. Meðfylgjandi er árshlutauppgjör en fullbúinn kannaður árshlutareikningur með skýringum verður birtur 30. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Páll Magnússon útvarpsstjóri í síma 515-3000.