Eik fasteignafélag hf. birtir í dag ársuppgjör sitt að loknum stjórnarfundi þar sem ársreikningur félagsins var samþykktir. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi: - Hagnaður fyrirtækisins var neikvæður um 1.201 milljónir. - Velta var 1.743,6 milljónir króna, sem er 3% lækkun. - EBITDA var 1.128,2 milljónir króna, sem er 12,7% lækkun. - Arðsemi eiginfjár var neikvæð um 49,4%. - Heildareignir félagsins voru að andvirði 20 milljarðar króna. - Víkjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og tekjuskattsskuldbinding, var að andvirði 2.384 milljónir króna. - Hlutfall víkjandi fjármagns var 11,9% - Handbært fé frá rekstri var 394 milljónir króna. Tap félagsins skýrist að öllu leiti af því að fasteignir félagsins lækkuðu lítillega að nafnvirði (9,1% að raunvirði), á meðan verð- og gengistryggð lán hækkuðu í takt við verðbólgu og veikingu krónunnar. Útleigan gekk vel á árinu miðað við aðstæður. Leiguverð náði jafnvægi á seinni hluta árs og óútleigðum einingum fór að fækka. Veruleg óvissa ríkir um fjármögnun félagsins. Þar sem samningsbundnar afborganir langtímalána eru mjög þungar og þörf er á endurfjármögnun á lánum, sem hafa fallið á gjalddaga, hefur félagið hafið viðræður við kröfuhafa um skuldbreytingar. Líkleg niðurstaða úr þeim viðræðum er sú að óveðtryggðir kröfuhafar muni breyta kröfum sínum í hlutafé. Forráðamenn félagsins eru bjartsýnir á að samkomulag náist þar sem það eru ríkjandi hagsmunir aðila að félagið lendi ekki í greiðsluþroti. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. s. 590 2200 / 861 3027